Entries from desember 2002
mán 30 desember, 2002
Jæja, það er tilgangslaust að hafa könnunina áfram
Það er ljóst hver verður næsti borgarstjóri okkar Reykvíkinga. En vilji hinna almennu kjósenda var skýr, þeir vildu fá mig í embættið. En til mín var ekki leitað og því fór sem fór; þriðji besti kosturinn í stöðunni var valinn. Þórólfur Árnason er maðurinn sem hreppti hnossið og djobbið. Til lukku með það.
Hver verður borgarstjóri [...]
sun 29 desember, 2002
bla
Ég vil fá einkunnir!! Hvað eru þessir prófessorar að bralla? Eru þeir bara að kýla út vömbina, eiga þeir ekki að vera að fara yfir prófin mín og útdeila tíum? Ég bara spyr. Þórólfur Árnason fyrrv. forstjóri Tals næsti borgarstjóri Reykvíkinga? Ja, hví ekki. Ég fyrir mitt leyti bíð hann velkominn til starfa og farnist [...]
sun 29 desember, 2002
Ó hvað ég hlýt að vera leiðinlegur þegar ég er fullur
Ég nebbla, í þau fáu skipti sem ég smakka það, sendi nánast öllum í símaskránni minni SMS. Klukkan fjögur um nóttina. Þau hljómuðu svona, fyrir þau ykkar sem ekki fengu skilaboðin, ég hefði sko farið á hausinn ef ég hefði sent ykkur öllum. Svo er þetta smá einkahúmor..
“Við spilum ekki eftir klukkunni, við erum ekki [...]
fös 27 desember, 2002
Er á lífi sko, bara nenni með engu móti að segja nokkuð.
Ætla samt að segja þetta, í boði Silju:
Það skiptir ekki máli
hversu oft giftur maður
skiptir um vinnu,
hann hefur alltaf sama
yfirmann!
mán 23 desember, 2002
Ný könnun í tilefni jólanna og langþráðra hræringa í íslenskum stjórnmálum
Hún er hérna til hægri.. Takið þátt ef þið svo kjósið.
fös 20 desember, 2002
Kein job!! Lífi mínu er formlega lokið, þeim sem vildu minnast mín er bent á hjálparstofnun kirkjunnar
Sehr geehrter Herr Benedikt!
Vielen Dank für ihre Anfrage. Zur Zeit habe ich alle Mitarbeiter und kann sie nicht im Jänner einplanen.
Sollte ich doch noch Jobs frei bekommen, werde ich mich umgehend bei ihnen melden.
Mit freundlichen Grüßen
Hanser robert
mið 18 desember, 2002
P.s. Að gefnu tilefni: Litaval síðunnar á ekki að endurspegla nokkrar pólitískar skoðanir; þetta eru litir jólanna, en ekki einhvers stjórnmálaflokks. Hvorki Vinstri-grænna né nokkurs annars!
þri 17 desember, 2002
Próf í dag
Gekk ekki vel, bara svínslega erfitt finnst mér, er samt búinn að ná og það er fyrir öllu..
fim 12 desember, 2002
what’s up?
Amma komin til landsins, sem þýðir aðeins eitt: Baukurinn rúntar eigi lengur um á “matsölutíkinni”. Sorgardagur í lífi lítils Benedikts. Nei, nei, segi bara svona. Var í prófi á þriðjudaginn, það gekk nú ekkert alltof vel
Eftir að hafa komist yfir upphaflega sjokkið, þegar ég leit yfir prófið á áttaði mig á því að ég [...]
mán 9 desember, 2002
Smásvindl, ég á víst að vera að læra, en…
Ég get ekki annað en endurgoldið greiðann, svo ég hef sett hlekk á hana Önnu hér til hliðar, og hlakka til að lesa bloggið hennar.
fim 5 desember, 2002
Ég er kominn í upplestrarfrí, kem kannski með einhver gullkorn hér ef mér leiðist mikið, annars mæti ég hress aftur um jólin
fim 5 desember, 2002
Bíó
Fór í bíó í gær með henni Silju minni. Fórum að sjá “Changing lanes” (Akbrautaskipti) með Samúel L. Jacksyni og sætabrauðinu Ben Affleck. Við Ben erum nú nokkuð líkir, ekki einungis erum við nafnar, heldur fara ótrúlega margar stelpur mannavillt á okkur tveimur. Ég er svoo sætur, er það ekki? Það var annars bara mjög [...]
mið 4 desember, 2002
Skemmtilegt blogg
Ég get ekki varist því að hlæja þegar ég les þessar færslur hjá manninum. Þetta er nauðsynlegt fyrir okkur kynlífssveltu námsmenn.
mið 4 desember, 2002
Alltof mikið að gerast
Ég er að brjálast, ég á svo margt ógert að ég kem engu í verk. Kannist þið við tilfinninguna? Ég þarf að:
- kaupa jólagjafir (þessar venjulegu þið vitið, læt nú aðra um það, borga bara eftir á.)
- kaupa ammælisgjöf handa Þórunni og jólagjöf handa Silju, því hún ætlar að gefa mér, ARG.
- þrífa bílinn hennar [...]
mið 4 desember, 2002
Hræringar
Halló, halló!! Var að fá tölvupóst frá Österreich, og það virðist sem það sé hægt að fá vinnu þarna, nú vilja þau fá allar upplýsingar um okkur Eyþór og hvenær við getum hafið störf. Það er nú það krítíska. Hvenær eigum við að leggja í hann? Eyþór vill ekki fara fyrr en hann hefur fengið [...]
mið 4 desember, 2002
Niðurstöður könnunarinnar
Það þýðir lítið að deila við dávaldinn.
Hvað á Baukurinn að gera eftir jól?
votes
perc
1.) Halda áfram leiðinlegu verkfræðinámi
4
18%
2.) Fara að vinna í Austurríki
5
23%
3.) Gerast auðnuleysingi og róni
3
14%
4.) Skrá sig í guðfræði
1
5%
5.) Leita að búsældarlegu kvonfangi
9
41%
1
2
3
4
5
Total Votes: 22
þri 3 desember, 2002
Próftaflan mín
Þriðjudagurinn 10. desember kl. 9:00-12:00 Uppbygging tölvaÞriðjudagurinn 17. desember kl. 9:00-12:00 Eðlisfræði 1VFöstudagurinn 20. desember kl. 13:30-16:30 Stærðfræðimynstur í tölvunarfræðiLaugardagurinn 21. desember kl. 13:30-16:30 Merki og kerfi
mán 2 desember, 2002
Sölden
Jæja, þá er bara að bíða og vona. Við Eyþór vorum að enda við að sækja um vinnu í Austurríki. Þar sem við náðum ekki í hana Drífa, sem Héðinn benti mér á að gæti hjálpað okkur í atvinnuleitinni, þá byrjuðum við á að senda tölvupóst til e-s Roberts, sem ég vona að sjái um [...]