mán 5 maí, 2003...18:01

Snóker eller Snooker

Jump to Comments

Ég hef ekki getað slitið mig frá Eurosport í dag, því úrslit heimsmeistarakeppninnar í Snóker fara nú fram í The Crucible í ensku borginni Sheffield, og mætast þar stálin stinn, Ken Doherty og Mark Williams. Williams komst í 10-2 en Doherty náði að jafna metin með mögnuðum spretti, fyrst í 11-11 og svo nú í 12-12. Ótrúlega skemmtileg íþrótt að mér finnst. Gaman að pæla í varnarleikjunum sem þeir leika, það eru þeir sem ráða iðulega milli feigs og ófeigs. Lokahnykkurinn er í kvöld, ég ætla að reyna að fá stjórn á myndlyklinum, kannski ekki mikil von til þess, það er ekkert á RÚV merkilegt fyrr en Sopranos birtast. En hvor verður heimsmeistari í kvöld? Þeir hafa báðir unnið titilinn einu sinni, Williams árið 2000 og Doherty árið 1997, og sá þeirra sem fyrr vinnur 18 ramma í kvöld verður krýndur heimsmeistari. Ég hef sett stefnuna á það að þegar ég kaupi mér íbúð þá hef ég eitt herbergi fyrir Snókerborðið mitt og mun það verða mín leið til að slaka á eftir erfiðan dag í forsætisráðuneytinu..

1 ummæli


Skildu eftir svar