Entries from júní 2003

fös 20 júní, 2003

Ammæli

Héðinn, minn mesti máti er 2×11 ára í dag, ég óska honum innilega til hamingju, hvar svo sem hann er niðurstaddur í veröldinni.

fim 19 júní, 2003

Ég veit að ég lofaði að klára greinina að neðan að lokinni bæjarferð, en nú tveimur bæjarferðum síðar lifi ég enn í synd, og hef því ákveðið að klára hana bara ekkert, heldur láta staðar numið þarna. Þetta er svona ör-hugleiðing. Þess í stað og í sárabætur ætla ég hér með að birta gullmola úr [...]

lau 14 júní, 2003

Hugleiðingar laugarvarðar

Ég sit löngum stundum uppi í þessu virki sem turninn í laugardalslaug er, og leiðbeini föðurlega ungviði Íslands, kenni því muninn á réttri og rangri breytni innan lögsögu minnar; laugardalslauginni. Og er ég sit þarna makindalega og hef upp raust mína í kallkerfið, líkt og ég ímynda mér að Guð hafi gert forðum; Þú skalt [...]

fim 5 júní, 2003

Jæja

Þá er afstaðin árviss lokun laugardalslaugar, og get ég því kastað mæðinni og skrifað nokkur minningarbrot hér á þessa annars ágætu vefsíðu. Eftir þessa nokkru daga er ég reynslunni ríkari; aldrei treysta iðnaðarmönnum. En hvað um það, þar sem ég get ekki lifað marga daga í röð án þess að fara í sund, ákvað ég [...]

mán 2 júní, 2003

Síðasta einkunnin komin í hús

og kom þægilega á óvart. Áhugasamir um gengi mitt í prófunum er bent á þessar litríku síður:
Stærðfræðigreining IIB
Heimspekileg forspjallsvísindi
Forritunarmál
Greining rása
Stýrikerfi