Entries from janúar 2004

lau 31 janúar, 2004

Allt eins og blómstrið eina

Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt,
lit og blöð niður lagði, -
líf mannlegt endar skjótt.
Svo hleypur æskan unga
óvissa dauðans leið
sem aldur og ellin þunga,
allt rennur sama skeið.
Innsigli engir fengu
upp á lífsstunda bið,
en þann kost undir gengu
allir að skilja við.
Dauðinn má svo [...]

mán 26 janúar, 2004

Gleði gleði

Stórvinur minn, Héðinn Björnsson, er staddur á landinu um þessar mundir og kætir það mig ósegjanlega. Í tilefni þess ætla ég að birta hér smá stubb sem einmitt nefndur Héðinn sendi mér í síðastliðinni viku. Er hann fenginn að láni úr þeim stórskemmtilega þætti Staupasteini. Þess má geta að ólyginn sagði mér að títtnefndur Héðinn [...]

mán 19 janúar, 2004

Síðasta önn

6 – 6 – 7 – 8 – 10. Meðaleinkunn mín á þeirri önn er því 7,4.
Ekkert sérstaklega jolly. Fimm áfangar eru of stór biti að kyngja.
Til samanburðar má nefna að nú er vegin meðaleinkunn mín í HÍ: 8,13
Vegin meðaleinkunn mín í rafmagns- og tölvuverkfræði: 8,35
Vegin meðaleinkunn mín í hugbúnaðarverkfræði: 7,98
Vegin meðaleinkunn mín í heimspekideild: [...]

mán 12 janúar, 2004

Djöfull var ég fullur, marr!

Alla gagnfræðaskólagöngu mína mátti ég heyra þennan frasa nánast alla daga vikunnar. Þetta byrjaði kröftuglega hvurn mánudag þegar bekkjarsystkin mín klöppuðu hverju öðru á bakið og hlógu kumpánlega að ævintýrum helgarinnar. Þar sem ég var stakur bindindismaður allt fram að ökuprófsaldri (!), þá var ég utangátta í öllum þessum umræðum. Þetta voru að sjálfsögðu óharðnaðir [...]

sun 11 janúar, 2004

Minn banki

P.s. Hafið þakkir fyrir flöskurnar!