Nú hafið þið lesið skrif eftir mig, dag eftir dag eftir dag. Misskemmtileg. En nú er komið nóg. Mig langar til að lesa eftir ykkur. Mér veitir ekki af smá upplyftingu. Ég lýsi sem sagt eftir bröndurum, ástarjátningum, sögum og slúðri. Þeir sem skrifa eitthvað skemmtilegt halda stöðu sinni sem vinir mínir, hinir fá að [...]
Entries from mars 2004
þri 30 mars, 2004
Skólagjöld
Fyrir rúmri viku síðan stóð ég fyrir utan aðalbyggingu HÍ og mótmælti hugmyndum um skólagjöld við Háskóla Íslands. Þrátt fyrir að vera nánast við dauðans dyr, þá lét ég mig hafa það að sýna mótmæli mín í verki, ekki síst vegna þess að mér þótti ekki næg umræða hafa farið fram um málið. Það hefur [...]
mán 29 mars, 2004
DV
Raunir helgarinnar raknar. Vann. Veikur. Vesæll. Viðskila við vitfirrta vinkonu & vinkvendi. Ég vann, helsjúkur, og það rann upp fyrir mér að ég ætti kannski einungis eftir að vinna eina eða tvær helgar í viðbót, á stað þar sem ég hef unnið í sex ár. Þetta er eins og útskrift úr grunn- eða menntaskóla; tilfinningaþrungin. [...]
fim 25 mars, 2004
Ekkert tímaskyn
Ég skynja tíma mjög undarlega þessa dagana. Mér finnst tíminn aldrei ætla að líða, allir dagar rosalega lengi að líða.. Það er kannski af því að ég geri ekki neitt allan daginn, læri nákvæmlega ekkert. Læt mig bara dagdreyma, m.a. um rennisléttar strendur Ipswich. Einmitt.
Já, svo ætlar hálsbólgan mig lifandi að drepa. Að öðru leyti [...]
mið 24 mars, 2004
Sommerarbejde
Þá er IAESTE umsóknin loksins frágengin og komin í póst, þá er bara að krossleggja fingur og leggjast á bæn. Það er með þónokkrum trega sem þetta er gert, enda sér nú fyrir endann á sex ára þrotlausu starfi mínu í þágu íþróttahreyfingarinnar. Það var einmitt 1. júní 1998 sem ég hóf störf við Laugardalslaug, [...]
mán 22 mars, 2004
Lá í móki í nótt
Skalf og hristist af kulda meðan ég klæddi mig sífellt betur og vafði fleirum ábreiðum yfir mig. Náði loks að festa blund undir morgun og hafði undarlegar draumfarir. Ég man yfirleitt ekki drauma mína, en ég ætla að reyna að rifja þennan upp, eins vel og ég get. Hann byrjaði reyndar á því að föngulegur [...]
sun 21 mars, 2004
Texti um Ísland
Þar sem ég var í bíói í gær að horfa á School of rock, ekki spyrja!, þá fannst mér við hæfi að birta þennan texta sem kom einmitt fyrir í myndinni.
Immigrant song
Ah, ah,
We come from the land of the ice and snow,
From the midnight sun where the hot springs blow.
The hammer of the gods will [...]
sun 21 mars, 2004
MSN
Akkúrat núna er ég að halda uppi samræðum við þrjár manneskjur á MSN, ég vissi ekki einu sinni að ég ætti svona marga vini! Hvað þá að ég hefði eitthvað við þá að segja!
fös 19 mars, 2004
Frábært framtak!
Eins og ykkur getur nærri, þá veit ég ekkert sniðugra en að telja ofan í sig kaloríurnar, og þess vegna er þetta uppáhaldssíðan mín þessa dagana. Heilsa og þjálfun (HOT). Mér finnst að það ætti að veita forsvarsmönnum síðunnar einhvers konar verðlaun. Það er allt tekið inn í reikninginn, fituinnihald fæðunnar og próteinmagn, hversu miklu [...]
fim 18 mars, 2004
Úff, ég veit ekki hvort ég myndi hafa þessa mynd á vefsíðunni minni ef ég væri að bjóða mig fram til forseta.
mið 17 mars, 2004
Kosningar
Tvö mál sem mig langar til að tjá mig um. Kosningarnar á Spáni og forsetakosningarnar á Íslandi. Fyrst:
Þingkosningarnar á Spáni
Kumpánarnir Bush og Oddsson hafa hamrað á því síðustu daga að ný ríkisstjórn Spánar hafi gefist upp í baráttunni við hryðjuverk. Með þeirri ákvörðun að draga herlið sitt frá Írak hafi hún því látið undan óskum [...]
þri 16 mars, 2004
YOU HAVE BEEN IN ICELAND FOR TOO LONG WHEN:
1) you’ve stopped checking out the weather forecasts and get dressed according to the latest issue of Vogue instead.
2) you see a person walking outside with an umbrella and you immediately think to yourself: “TOURIST!!”
3) your summersandals have become every-weather-shoes.
4) 42°C in a hot pot is cold but 16°C in July is freaking hot!
5) it [...]
mán 15 mars, 2004
Bush. Blair. Berlusconi. Aznar.
Hjartanlega zammála fréttaztofu útvarpz í þezzum efnum. Ég þekki hinz vegar annað dæmi um 3xB, og hann er zko ekkert flón!
mán 15 mars, 2004
Helgi lystisemdanna
Jamm, á ég að lýsa helginni? Ég skal reyna. I’ll start with the premise. Ég var í síðara misserisprófinu á föstudaginn í GRUPP, og í stað þess að nýta síðustu viku í að læra fyrir prófið, þá fann ég mér eitthvað annað til að hafa fyrir stafni. Og hvað var nógu áhugavert og tímafrekt að [...]
sun 14 mars, 2004
Hann lengi lifi, húrra! Húrra! Húrra! Húrra!
Í tilefni níræðisafmælis hr. Árna Helgasonar, bindindisfrömuðar frá Stykkishólmi ætla ég að láta tvær vísur eftir hann fjúka, sem ég tók upp úr Morgunblaðinu í dag:
Hófdrykkjan er heldur flá,
henni er valt að þjóna.
Hún er bara byrjun á
að breyta manni í róna.
–
Þá er nú ekki beisið í bólinu á kvöldin
bölvað ekkisens þverlyndið, hefir völdin.
Hún lemur mig [...]
fim 11 mars, 2004
Nýir hlekkir
Í ömurlegri tilraun til að fá teiknaða Jollamynd af mér, ætla ég að bæta honum við tenglalistann hér til hliðar. Það er reyndar ekki aðalástæðan, heldur eru skrif hans flugbeitt og skemmtileg. Annar VÍR-ari sem hefur unnið til þess heiður að vera hér nefndur er Bjarni Sig. Farið nú að lesa skrifin. Og ekki má [...]
sun 7 mars, 2004
Annars verð ég að passa mig
Ég má ekki tapa mér í pólitískum áróðri. Ég hélt raunar að ég væri fámáll maður og enginn þyrfti að kvarta undan kjaftavaðli af minni hálfu. En öllum getur skjöplast, þar á meðal mér. Ég fór í vísindaferð á föstudaginn og var för heitið inn á varnarstöð Bandaríkjahers við Keflavíkurflugvöll. Mjög skemmtileg ferð, þar sem [...]
sun 7 mars, 2004
Cheyenne Mountain Operations Center
Jæja, þá veit maður hvar Dick Cheney heldur sig svona dagsdaglega, eða réttara sagt; felur sig frá degi til dags. Nú, auðvitað í Cheney-fjalli. Hann læðist þar um ásamt Dr. Strangelove og co.
PERFORMANCE CRITERIA
The underground Combat Operations Center (COC) was designed to ensure 70 percent probability of continuing to function against a five megaton weapon [...]
mið 3 mars, 2004
Í fréttum er þetta helzt…
Í fréttatíma RÚV í fyrrakvöld, 1. mars, voru þrjár fréttir sem vöktu athygli mína. Uppsagnir hjúkrunarfræðinganna í heimahjúkruninni voru í brennidepli, þar sagði hjúkrunarforstjórinn upp akstursfríðindum hjúkrunarfræðinganna í því augnamiði að spara örfáar krónur. Ástæðan fyrir því að hjúkkurnar fengu ákveðin fríðindi í formi bílastyrks er sú að á sínum tíma þegar heimahjúkrunin færðist frá [...]
mán 1 mars, 2004
Harry Belafonte á afmæli í dag
Þar sem Harry gamli á afmæli í dag fannst mér gráupplagt að birta texta við einn af hans þekktari slögurum. Eins og þið vitið geri ég háar kröfur til þeirrar ljóðlistar sem ég birti hér á vefsetrinu mínu, og þessi texti stenst allar þær kröfur. Listasmíð. Ég birti textann hér af ýmsum ástæðum, ein er [...]
mán 1 mars, 2004
Á leið í skólann
Er ég rölti upp í skólann í morgun henti mig furðulegt atvik. Ég var s.s. labbandi og á undan mér gekk mannvera, sem gekk nokkuð einkennilega; hún var greinilega að flýta sér og gekk með nokkrum tilþrifum, rykktist öll til og frá í hverju skrefi. Við mættum svo frekar smávaxinni og þybbinni konu sem [...]