Entries from apríl 2004

fim 29 apríl, 2004

Próftaflan endurútgefin

Þriðjudagur 4. maí: Rafeindatækni 1. 09:00-12:00 Háskólabíó – Miðjan.
Miðvikudagur 5. maí: Töluleg greining. 13:30-16:30 Aðalbygging.
Laugardagur 8. maí: Tölvutækni. 13:30-16:30 VR II.
Þriðjudagur 11. maí: Greining og uppbygging rása. 9:00-12:00 Aðalbygging.
Föstudagur 14. maí: Rafsegulfræði. 13:30-16:30 VR II.
Í haust hafði ég aldrei tekið próf í VRII, nú fæ ég að taka próf í fyrsta skipti í Háskólabíói, sem [...]

fim 29 apríl, 2004

Ég er fyndnasti maður í heimi

Hvaða spjallþáttastjórnandi ert þú?David Letterman
Konungur spjallþáttanna!

Taktu prófið
Samið af YouThink.com.

Horfði á Letterman í gær (endurtekinn þáttur), líkt og ég geri á hverju kvöldi. Helvítis beinin ætla að leggja niður Stöð 3, og eyðileggja þar með svefnpilluna mína sem er, kvöld hvert: Letterman, Seinfeld og Vinir. En hvað um það. Gestur kvöldsins var Courtney Love, og lék [...]

mið 21 apríl, 2004

Málfarshorn

Ég get eigi orða bundist. Í gær lenti ég í því að tveir kennarar fóru í sitthvoru lagi með sömu málfræðivilluna. Það væri svo sem ekkert nýtt að raunvísindakennarar misþyrmdu íslensku máli, en þetta kom mér svo á óvart því ég ber virðingu fyrir þeim báðum, og sérstaklega er öðrum þeirra greinilega annt um íslenska [...]

mán 19 apríl, 2004

Lóan er komin

Hef ekki séð lóuna fyrr en í dag, en þegar ég keyrði heim eftir að hafa skilað Þorra litla úr pössun sá ég heilt lóuhaf á Miklatúninu. Ég minnist þess ekki að hafa séð jafn margar lóur samankomnar. Og þær hafa eflaust verið enn fleiri en ég gerði mér grein fyrir, því þær voru svo [...]

fim 15 apríl, 2004

Ég vissi það bara víst!

Ég dýrka fréttastofu útvarps. Þar sem ég veit að margir lesendur mínir ná ekki útsendingum hljóðvarpsins, einkum vegna þess að þeir eru staddir erlendis um víðar gresjur Evrópu ætla ég að endursegja fyrstu kvöldfréttina eins og hún barst mér til eyrna. Ég var raunar búinn að missa alla trú á íslenskum ráðamönnun eftir að hafa [...]

þri 13 apríl, 2004

Lukku Láki

Eftir gresjunni kemur maður
ríðandi hesti á.
Arizona er staður
sem hann hefur mætur á.
Léttfeti er hans fákur
dyggur og góður þjónn.
Lukku Láki er kátur
laganna vörður og þjónn.
Með sexhleypunni er hann sneggri
en skugginn að skjóta í mark.
Léttfeti hans með hrekki
gerir oft heilmikið hark.
Lukku Láki er feti
framar en aðrir menn.
Ég held bara enginn geti
sigrað hann Láka enn.
Í eldlínunni báðir standa
og [...]

mán 12 apríl, 2004

Úff, hvað er ekki að mér??

Disorder
Rating

Paranoid:
High

Schizoid:
Moderate

Schizotypal:
Low

Antisocial:
Moderate

Borderline:
Low

Histrionic:
Low

Narcissistic:
High

Avoidant:
High

Dependent:
Very High

Obsessive-Compulsive:
Moderate

– Taktu persónuleikakönnun –

mán 12 apríl, 2004

Málshátturinn í páskaegginu mínu

Sá sem verður yfir sig ástfanginn byrjar á því að blekkja sjálfan sig og endar á því að blekkja aðra.
Þetta var reyndar bara einn af þremur (ég veit, ég er súkkulaðigrís). Ég man reyndar ómögulega einn þeirra, en sá þriðji hljómaði einhvern veginn svo:
Bráðir eru barns hugir.
Mér líður reyndar nokkuð undarlega þessa dagana. Hvort það [...]

fim 8 apríl, 2004

Snóker og sund

Ekkert annað kemst að hjá mér þessa dagana. Ekki einu sinni lærdómur. Hann situr bara á hakanum nú sem endranær. Var að vinna í morgun, mjög sáttur við stórhátíðarkaupið. Horfði á Eurosport það sem eftir lifði dags. Mig langar í snókerborð!

sun 4 apríl, 2004

Fjallganga
Urð og grjót.
Upp í mót.
Ekkert nema urð og grjót.
Klífa skriður.
Skríða kletta.
Velta niður.
Vera að detta.
Hrufla sig á hverjum steini.
Halda að sárið nái beini.
Finna hvernig hjartað berst,
holdið merst
og tungan skerst.
Ráma allt í einu í Drottin:
- Elsku Drottinn!
Núna var ég nærri dottinn!
Þér ég lofa því að fara
þvílíkt aldrei framar, bara
ef þú heldur í mig núna!
Öðlast lítinn styrk við [...]

sun 4 apríl, 2004

Jamm

Fór á tónleika Hamrahlíðarkórsins í gær í Listasafni Íslands. Fékk svo hringingu frá Eyþóri sem mér þótti mjög vænt um þó hann hafi vakið mig um miðja nótt. Við urðum svo að slíta samtalinu fljótlega vegna slæmra skilyrða, en mér hlýnaði um hjartarætur. Hann er gull af manni.

lau 3 apríl, 2004

Kúba-upprifjun

Nú er hún Olga að halda á vit ævintýranna á morgun, þegar hún sest upp í flugvél á leið sinni til Kúbu. Af því tilefni ætla ég að reyna að rifja upp upphaf ferðar minnar til eyjarinnar í nóvember síðastliðnum. Það var miðvikudaginn 12. nóvember 2003 að ég, pabbi og mamma, Orri og Þorsteinn fórum [...]

lau 3 apríl, 2004

Aðalfundur VÍR

Aðalfundur VÍR afstaðinn, og Olga gjaldkeri stakk upp á mér í starf (endur)skoðanda ársreikninga VÍR og tók ég áskoruninni. Ég tók síðan til máls undir liðnum “Önnur mál”, og virðist það hafa vakið nokkra kátínu meðal samnemenda minna. Það komu a.m.k. fjölmargir upp að mér og þökkuðu mér fyrir, mörgum virtist koma það á óvart [...]

fim 1 apríl, 2004

Linux sökkar

og þið sem kallið ykkur vini mína, megið halda á brott; norður og niður. Taki það til sín sem eiga!

fim 1 apríl, 2004

Aprílgöbb

Mikið voru íslenskir fjölmiðlar slappir í dag. Ófrumlegir! Þeir hjuggu flestir í sömu knérunn, sem lýsir ekki einungis andleysi fjölmiðlanna sjálfra heldur ekki síður hvað íslenska þjóðin er orðin gegnsýrð af bandarísku hamborgaramenningunni og hve sorglega einsleit hún er orðin.
Fréttablaðið, DV, Morgunblaðið og Stöð 2 reyndu öll að blekkja landsmenn með sama agninu! Fræg vestræn [...]