Entries from febrúar 2005

sun 27 febrúar, 2005

Jón Árni orðinn faðir

Fleiri myndir hér.

þri 22 febrúar, 2005

Sáttur við dráttinn

Sá þetta á Vísi punkti is áðan og hafði gaman að fyrirsögninni: Viggó sáttur við dráttinn. Hvenær ætli það verði blaðamál þegar ég kem fram og segist vera sáttur við dráttinn? Ég vona að það styttist í það.

mán 21 febrúar, 2005

Óhugnarlega frétt dagsins

mbl.is. Maður þarf reyndar að lesa þetta nokkrum sinnum til að skilja þetta fullkomlega.

mið 16 febrúar, 2005

Einstaklingskosningar

Mig hefur lengi langað til að skrifa um kosningafyrirkomulagið í háskólanum, rakst svo á þessa færslu á Keipdúnki Atla Bollasonar og fannst hún gott innlegg í umræðuna, og kannski ekki síður þessar þrjátíu og eitthvað athugasemdir sem gerðar hafa verið við hana. Þarna eru nokkrir misgóðir punktar.

sun 13 febrúar, 2005

Mér þykir sopinn góður

fös 11 febrúar, 2005

Fékk þessa könnun frá Eyrúnu, datt í hug að svara henni hér

1. Hvað er klukkan?
15:10
2. Hvaða nafn er á fæðingarvottorðinu þínu?
uuu: Benedikt Bjarni Bogason held ég, hef annars ekki skoðað það nýlega.. Benedikts nafnið er reyndar komið frá afa mínum, heiti í höfuð hans og það átti að vera surprise fyrir afa gamla, en þegar pabbi tilkynnti stoltur nafnið á örverpinu var hann dáldið utan við [...]

mið 9 febrúar, 2005

Hliðargötur

Fór á bráðskemmtilega mynd í gærkvöldi með honum Eyþóri, nefnilega Sideways. Er skemmst frá því að segja að við kumpánar skemmtum okkur konunglega, og engdumst í sætum okkar yfir örlögum tvímenninganna.
Fyrir nokkrum misserum fór ég á myndina About Schmidt með Jack Nicholson, sem ku einmitt vera leikstýrð af sama manni og Sideways. Í það sinnið [...]

sun 6 febrúar, 2005

Þriggja daga fyllerí

Nú fer að skýrast af hverju ég er með öllu raddlaus þessa dagana:

Hér þurfti ég að verjast fimlega til að vera ekki stimplaður í stuttbuxnadeildina

Jæja, nú ætti maður að fara að slaka á. Lenti í því á fimmtudaginn að eigandi krárinnar sem ég var staddur á gaf sig á tal við okkur Eyþór. Honum þótti [...]

mið 2 febrúar, 2005

Góður

Vil benda Eyþóri (og öðrum sem hafa áhuga) á þessa mynd.