Entries from mars 2005

þri 29 mars, 2005

Jarðskjálftar

Í gær, á öðrum páskadegi, dundi yfir jarðskjálfti litlu minni en sá sem reið yfir á öðrum degi jóla. Tilviljun? Annar í hvítasunnu ber upp á 16. maí í ár. Hvar verður þú? Er enginn óhultur?

mán 28 mars, 2005

Mæli sterklega með þessari grein

um Bobby Fischer. Hún er hér..

fös 25 mars, 2005

Bobby kominn „heim“

Og ég mátti vart vatni halda yfir þessum texta, en þetta ku vera framlag okkar Íslendinga í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Djúpt.
If I had your love
You would be
What most inspires me.
Sacred soul
Fantasy
Brightest light
Guiding me on wings.
You would be the heart inside me
What I’d wish
On a star
All to me
That is what you are.
If I had your love
I [...]

mið 23 mars, 2005

Gamla góða miðstöðin

Ég var búinn að gleyma miðstöðinni minni, sem hefur löngum yljað mér á köldum vetrarkvöldum. Þannig er mál með vexti að um annað eyrað mitt fer óeðlilega mikið blóðflæði. Já, bara annað eyrað. Þetta er svo skjalfest á þessari skemmtilegu mynd hér að neðan, mynd sem er skemmtileg fyrir margra hluta sakir.

mán 21 mars, 2005

Ég er reiður

Helvítis hálfvitar! Ég hélt að bandaríska stjórnarskráin bannaði grimma og ómannúðlega refsingu (cruel and unusual punishment). Ég hélt að þeir gætu a.m.k. unað sínum eigin þegnum þessa, þó þeir telji sig ekki þurfa að virða mannréttindi annarra. Spurning að endurskoða komandi ferð vestur um haf, ég vona allavega að ég lendi ekki í neinu slysi [...]

fim 17 mars, 2005

Gleði gleði gleði

þið kunnið restina!
Gleðin stafar af ánægjulegum fregnum frá Háskóla Íslands og nýjum rektor skólans.
Þessu ótengt, óhugur fór um mig við þessar fréttir af Letterman, átrúnaðargoði mínu.
Lestri kvöldfrétta er lokið. Veðurspá er lesin frá Veðurstofu Íslands..

þri 15 mars, 2005

Svona skemmti ég mér

Þessi mynd var tekin á árshátíðinni þegar obbinn af fólkinu dansaði af sér brækurnar, þ.e. það sem ekki lá áfengisdauða í blómabeði fyrir utan Hótel Selfoss. Minn dundaði sér bara í hugarleikfimi, varð obbolítið strand, og þurfti að leita sérfræðihjálpar. Ég á enn örfá orð eftir í gátunni, er að hugsa um að senda þetta [...]

mán 7 mars, 2005

Kaldhæðni dauðans

Talabani næsti forseti Íraks
Bandaríkjamenn steyptu semsagt Saddam af stóli til þess eins að koma einhverjum talibana til valda (sem í þokkabót er svo Kúrdi!). Ég segi nú bara eins og karl faðir minn: helvítis talibani?

mið 2 mars, 2005

Nú geta vinir mínir tekið gleði sína

Hægt að spila Championship Manager á netinu. Go knock yourselves out.

þri 1 mars, 2005

Myndarpiltur

Hann er rúmir fimmtíu sentímetrar og rúmar fjórtán merkur, ef ég man rétt..