Entries from maí 2005

mið 18 maí, 2005

Sayonara

Jæja, þá er ég farinn í útskriftarferð vestur um haf. Eftir 5 klukkutíma verð ég í nýrri breiðþotu Flugleiða, Boeing 767, í beinu flugi til San Francisco ásamt fríðu föruneyti verðandi rafmagns- og tölvuverkfræðinga að ógleymdu ýmsu hefðarfólki eins og Halldóri Ásgrímssyni og Steinunni Valdísi Óskarsdóttur. Í Frisco dveljum við í vikutíma og heimsækjum hina [...]

mán 16 maí, 2005

Búinn að bæta við smá skýringartexta við flestar myndirnar sem ég tók í Kraká, ekki ýkja merkilegar myndir nema fyrir mig persónulega, en þið megið skoða þær ef þið viljið

lau 14 maí, 2005

Prófin búin

… og ég vona að ég eigi aldrei erindi upp í VR-tvo aftur.

fim 12 maí, 2005

Fischer lögsækir Bobbysocks

fös 6 maí, 2005

Johnny’s boy

fös 6 maí, 2005

Der untergang

Ég er hálflamaður eftir myndina. Hún rekur má segja smiðshöggið á gríðarlega yfirferð mína og foreldra minna á heimsstyrjöldinni síðari. Við ákváðum að eyða páskunum í að horfa á lista Schindlers og Píanóleikarann (er ekki til betra orð á íslensku yfir píanó? Hvorki hljómborð né flygill ná merkingunni sem ég er að leitast eftir). Í [...]

fim 5 maí, 2005

Ekki nein rætni

Af ákveðinni ástæðu rifjaðist upp fyrir mér Auðunarmál Georgs Ólafssonar í gær, og svo rakst ég á viðtalið sem tekið var við hann 1. apríl síðastliðinn. Þar sem ég hef aldrei heyrt það (en ótalsinnum lesið) fannst mér rétt að deila því með ykkur ef einhver væri í sömu sporum og vildi heyra. Það má [...]

fim 5 maí, 2005

Fitandi að synda í köldu vatni

Neðangreint fengið frá Vísi.is: Visir.is
Það hefur löngum þótt bæði hreystimerki og hressandi að fá sér sundsprett í ísköldu vatni. Hópur vísindamanna við háskólann í Flórída ákvað að kanna hvort að það væri jafnhollt og hressileikinn gefur til kynna.
Niðurstöðurnar koma ugglaust mörgum á óvart. Það er fitandi að synda í köldu vatni. Vísindamennirnir fengu ellefu [...]