Ég á þriggja ára bloggafmæli í dag. Húrra, húrra, húrra.
Entries from október 2005
sun 23 október, 2005
Allt fyrir frægðina
Grein Egils Helgasonar um „áhugamál“ mitt:
http://www.visir.is/?PageID=539&NewsID=58758
fim 13 október, 2005
Ferðasaga
Hinn æðisgengni Emil hefur birt (allítarleg) brot úr ferðasögu námsferðar rafmagns- og tölvuverkfræðinga frá því í vor, þegar haldið var vestur um haf til San Francisco, LA, Vegas og Hawai’i. Þetta er gimsteinn fyrir alla þá sem þangað fóru. Emil á þakkir skildar.
Ferðasagan.
þri 11 október, 2005
Fimmta ígrundun: Hvað merkir „góð kennsla“ í mínum huga?
Í mínum huga er góð kennsla þegar áhugasömum kennara tekst að smita nemendur sína; gera þá jafn áhugasama um efnið. Þegar tekst að virkja nemendur í fróðleiksleit, vekja hjá þeim frekari löngun til að kynnast námsefninu. Og þó kennarinn sé áhugalítill þarf hann helst að gera sér upp áhuga, þannig að hann virki áhugasamur um [...]
mið 5 október, 2005
Fjórða ígrundun: Hvað merkir fyrir mér að læra að kenna?
Ég bjóst einna helst við að læra einhvers konar „kennaratækni“, hvernig fyrsti tími annarinnar ætti að fara fram; fyrstu kynnin væru mikilvæg og því nauðsynlegt að slá rétta tóninn fyrir alla önnina. Ég átti von á að fræðast um leyndarmálum fagsins eins og hvernig ætti að bregðast við agavandamálum, hvernig ætti að skipuleggja kennslustundir (fyrirlestur [...]
mið 5 október, 2005
Þriðja ígrundun: Er ég sammála áherslum í aðalnámskrá?
Ég er mjög hrifinn af eftirfarandi texti úr aðalnámskrá framhaldsskóla í stærðfræði um þrautalausnir þar sem ástæður fyrir því að efla kennslu í þrautalausnum eru tíundaðar:
+ Þegar leysa þarf stærðfræðileg verkefni sem koma upp í daglegu lífi eða í vísindalegu starfi er aðferðin sjaldan gefin fyrir fram.
+ Lausnir þrauta gefa tilefni til fjölbreytilegra vinnubragða sem [...]
mið 5 október, 2005
Önnur ígrundun: Á fagið mitt erindi við nemendur?
Verkfræði er ekki kennd við grunn- eða framhaldsskóla enda mjög sérhæft nám sem krefst mikillar þekkingar á stærðfræði, eðlisfræði og öðrum fögum. Og þegar ég hugsa út í það þá finnst mér erfitt að henda reiður á hvað er í raun verkfræði. Helst kemst ég að þeirri niðurstöðu að í verkfræði er tekin (vonandi hæfileg) [...]
mið 5 október, 2005
Fyrsta ígrundun: Minnisstæður kennari
Ég á mér marga minnisstæða kennara, þó aðallega úr grunn- og menntaskóla. Kennarar mínir úr háskóla eru mér lítt minnisstæðir, nema þá helst fyrir það hversu slappir kennarar þeir voru; voru t.d. lítt meðvitaðir um framkomu. Þeir áttu það sumir til að muldra bara eitthvað meðan þeir sátu við kennaraborðið eða skrifuðu á töfluna og [...]