Entries from desember 2005

mið 28 desember, 2005

Fögnuður

Í kvöld hef ég í hyggju að hóa í vini og kunningja til skrafs og ráðagerðar og er ætlunin að hafa huggulega samverustund með gestum og gangandi. Allir velkomnir sem þyrstir í mjöð í góðum félagsskap. Húllumhæið byrjar upp úr klukkan níu í kvöld á Næsta bar. Vonast til að sjá sem flesta.

mið 7 desember, 2005

Alltaf jafn liðlegir bankastarfsmennirnir

Þarna er komin skýringin á því af hverju maður er alltaf látinn standa í röð tímunum saman, einungis til þess að fá að vita að maður hafi staðið í vitlausri röð og maður eigi að standa í annarri röð sem er helmingi lengri.
mbl.is

sun 4 desember, 2005

Níunda ígrundun: Að læra nýja námsgrein er eins og að læra nýtt tungumál. Ertu sammála þessari fullyrðingu?

Vissulega er þarna margt líkt. Til þess að læra nýtt fag þarf maður mikla þjálfun, maður þarf sífellt að þjálfa sjálfan sig í grunnatriðunum líkt og með málfræðina í tungumálum. Svo getur verið gott að nokkrir komi saman, æfi sig saman og læri að nota nýja tungutakið. Læra þannig af mistökunum því æfingin skapar meistarann. [...]

sun 4 desember, 2005

Áttunda ígrundun: Hvað merkir orðið „nemandi“ í mínum huga?

Hefðbundin túlkun orðsins nemandi er að sjálfsögðu „sá sem er í námi“, þá væntanlega við einhverja skólastofnun. En svo má færa rök fyrir því að við séum öll sífellt að læra eitthvað, nánast á hverri vakandi stund erum við að meðtaka nýja hluti, vinsa úr og melta það sem okkur þykir markvert. Við erum því [...]

sun 4 desember, 2005

Sjöunda ígrundun: Hvað merkir í mínum huga að læra mitt fag?

Fagið mitt er verkfræði, og mín afstaða er sú að maður læri það fag ekki á nokkurn hátt. Hins vegar er hægt að kenna manni notkun ýmissa verkfæra, eins og t.d. stærðfræði og eðlisfræði, þannig að maður sé betur undir það búinn að takast á við þau verkefni sem maður þarf að glíma við sem [...]

sun 4 desember, 2005

Sjötta ígrundun: Af hverju skyldu nemendur oft læra annað en það sem þeim er kennt?

Ég hóf ekki að velta þessari spurningu fyrir mér af neinni alvöru fyrr en eftir að æfingarkennslu minni lauk í MK núna í októbermánuði. Þar var mitt hlutskipti að kenna nemendum áfangans EÐL103 um skriðþunga og varðveislu hans. Inni í það kom svo umræða um fjaðrandi árekstra sem eru þeirrar náttúru að hreyfiorka hlutanna varðveitist [...]