Jæja, þá er ég endanlega orðinn fullgildur framhaldsskólakennari með öll tilskilin réttindi. Fékk í dag leyfisbréf frá menntamálaráðuneyti þar sem mér er veitt leyfi til að brúka lögverndaða starfsheitið framhaldsskólakennari. Raunar fékk ég bara leyfið fyrir stærðfræði og tölvufræði en ekki í eðlisfræði eins og ég hafði þó sótt um. Veit ekki alveg hvað veldur, í réttindanáminu tók ég að mér eðlisfræðikennslu og gerði alltaf ráð fyrir að starfa m.a. sem slíkur. Ég á svo von á öðru bréfi innan skamms frá ráðherra þar sem ég fæ grunnskólakennaratitilinn staðfestan. Svo sá ég á heimasíðu FG að ég er formlega orðinn starfsmaður þar. Svo það er allt að gerast…
mið 16 ágúst, 2006...13:48
Benedikt framhaldsskólakennari
Jump to Comments
3 Ummæli
mið 16 ágúst, 2006 klukkan 14:26
Til hamingju með þetta kallinn.
fim 17 ágúst, 2006 klukkan 16:36
Til lukku með það
sun 20 ágúst, 2006 klukkan 18:18
Já tilhamingju Benni! Þú átt eftir að vera flottur kennari!