mið 27 desember, 2006...22:02

Kvartöld

Jump to Comments

Þá er svo komið að aldarfjórðungur er liðinn frá því ég ákvað að flytja að heiman; þaðan sem hafði farið vel um mig um níu mánaða skeið og út í óvissuna, um tveimur vikum síðar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Ég hafði gert mig svo heimakominn að færustu læknar töldu mig stofna heilsu hýsilsins í hættu og ákváðu að koma fæðingunni af stað. Það virtist raunar ekki ætla að bera neinn árangur og höfðu læknarnir gefist upp og ráðgerðu aðra atlögu nokkrum dögum síðar, öðrum hvorum megin áramótanna þegar mér snerist hugur á síðustu stundu og dreif mig út. Nú tuttuguogfimm árum síðar fæ ég á tilfinninguna að ég sé jafnþaulsetinn á heimili mínu og ég var forðum. Það setur (geð-) heilbrigði mitt í hættu og ekki síður hýsilsins, en hver veit að mér snúist hugur þegar síst skyldi og ég fljúgi út í hinn stóra heim. Enginn veit ævi sína fyrr en öll er. Blablabla.

Hvað sem þessu öllu líður þá vil ég bjóða öllum vinum og kunningjum mínum að samgleðjast mér á þessum tímamótum. Líkt og undanfarin ár hyggst ég dvelja á næsta bar annað kvöld, fimmtudagskvöld við bjórdrykkju og njóta félagsskapar við annað fólk. Ég lofa djúpum umræðum um menn og málefni, og bjórinn er góður! Það mega allir kíkja við upp úr klukkan níu, við verðum þarna til lokunar. Gjafir stranglega bannaðar.

2 Ummæli


Skildu eftir svar