fim 15 mars, 2007...21:37

LaTeX

Jump to Comments

Undur og stórmerki. Ég hýsi þetta svokallaða blogg mitt (sem stendur vart undir nafni þessi dægrin) hjá wordpress sem er eitt margra fyrirtækja sem bjóða upp á bloggkerfi. Ég veit hins vegar ekki um neitt annað kerfi sem leyfir manni að skrifa latex-skipanir í textann og sér svo um að breyta skipununum í fallegan texta (raunar png-mynd).

Að þessu tilefni er rétt að rifja upp fallegustu jöfnu stærðfræðinnar: e^{i\pi} + 1 = 0

Ánægja Benna \to \infty.

Fyrir áhugasama. Ef þið skoðið aðra hvora myndina þá getið þið faktíst útbúið ykkar eigin myndir, stjórnað litum og stærðum. Skora á alla LaTeX unnendur að láta gamminn geysa.

8 Ummæli


Skildu eftir svar