sun 16 desember, 2007...18:11

Ciao bella

Jump to Comments

Með trega í hjarta tilkynnist það hér með að árlegu teiti mínu milli jóla og nýárs hefur verið aflýst í ár, 2007. Þetta er vegna Ítalíuferðar minnar yfir hátíðirnar, en ég hef í hyggju að hitta Eyþór í Treviso, rétt fyrir utan Feneyjar þann 22. desember. Við munum svo væntanlega eyða dögunum við að kanna dásemdir Ítalíu að nóttu sem og degi, allt þar til ég þarf að koma til baka í kennslu þann 3. janúar á næsta ári. Ætlunin er að flakka milli borga og enda förina í sjálfri Rómaborg, eða öllu heldur í Vatikaninu hjá nafna mínum sextánda. Gleðilega hátíð!

Skildu eftir svar