Entries from október 2008

mán 20 október, 2008

Friðrik Sophusson

Úr því Friðrik er tilbúinn til að leggja lóð sitt á vogarskálarnar í þessu erfiða efnahagsástandi, væri þá ekki nær að nýta krafta hans sem fjármálaráðherra heldur en forstjóra Landsvirkjunnar? Dýralæknirinn hefði þá aukinn tíma til að stunda tungumálanám, t.d. í Englandi.

mán 20 október, 2008

Fiscal policy

Starfsmenn morgunblaðsins er yndislegir. Hér má sjá hvernig þeir skilja hugtakið “fiscal policy”.
mbl.is:
Segir í FT að viðræður íslenskra stjórnvalda og IMF hafi gengið vel og að þær hafi einkum beinst að þremur greinum, bankageiranum, sjávarútvegi og peningamálastefnu Seðlabanka Íslands og stýrivöxtum hans.
ft.com:
It is understood that discussions between Iceland and the IMF on conditions have gone [...]

fim 2 október, 2008

Halló frá Englandi – 2

Kominn tími á að fullvissa ykkur um að ég sé enn á lífi. Þessir dagar hafa nú liðið hjá nokkuð tíðindalítið amk í samanburði við þann fyrsta, sem ég gerði allítarlega grein fyrir í síðasta pósti.
Upprifjunarnámskeiðið hefur ekki verið neitt ofboðslega spennandi. Það er sko kennt í Ipswich, en með hjálp fjarfundarbúnaðar (alls ekki þess [...]