fim 2 október, 2008...17:12

Halló frá Englandi – 2

Jump to Comments

Kominn tími á að fullvissa ykkur um að ég sé enn á lífi. Þessir dagar hafa nú liðið hjá nokkuð tíðindalítið amk í samanburði við þann fyrsta, sem ég gerði allítarlega grein fyrir í síðasta pósti.

Upprifjunarnámskeiðið hefur ekki verið neitt ofboðslega spennandi. Það er sko kennt í Ipswich, en með hjálp fjarfundarbúnaðar (alls ekki þess sem ég vann að um árið – í Ipswich) get ég og tveir aðrir nemendur fylgst með því sem fram fer. Þetta er írönsk stelpa og indverskur strákur, en hún ætlar víst að flytjast til Ipswich og hann er með svo sterkan indverskan hreim að ég skil bara fjórðung af því sem hann segir, og má ég hafa mig allan við til þess. Mér sýnist að svona 4-5 nemendur séu í Ipswich, en ég veit svosem ekkert hvort það eru alltaf þeir sömu sem mæta, hvort fleiri séu væntanlegir þegar nær dregur, hvort allir séu í Upplýsingaöryggi einsog ég, og þar fram eftir götunum.

Námsefnið er ansi kaflaskipt, margt af þessu er eitthvað sem ég kann upp á tíu, af því ég hef kennt þetta í FG, sumt hef ég séð áður en er kafað dýpra í núna og sumt skil ég bara alls ekki! Þannig að ég er ekkert rosalega upprifinn í tímum. Ekki bætir úr skák að ég fæ námsgögnin send í pósti smátt og smátt, og ég er ekki mikill aðdáandi breskra bréfbera! Póstur er alltaf u.þ.b. 5x lengur á leiðinni til mín en ég og sendandinn minn gera ráð fyrir – ef hann berst mér þá yfir höfuð.

Svo gerðist það einn daginn sem ég hafði óttast allt frá því að ég steig fyrst inn í herbergið og áttað mig á því að ég kynni vel við vistarverurnar; tilkynning hékk á útidyrahurðinni að allir íbúar í stigaganginum ættu að hafa samband við afgreiðsluna. Þar fékk ég að vita að við þyrftum að flytja úr íbúðina í aðra, í næsta stigagangi. Ég vissi þegar ég kom að svo gæti farið, en hafði þó spurt og fengið fullvissu að svo yrði ekki. Þeim snerist bersýnilega hugur, og sögðu að þessar íbúðir væru nýttar á sumrin í leigu til fyrirtækja, og þar sem við ætluðum að dvelja fram á næsta haust væri betra að flytja strax, frekar heldur en í júní þegar prófatímabilið stæði yfir.

Eitthvað reyndi ég að malda í móinn, og sagðist kunna mjög vel við mig í mínu herbergi og vildi síður flytja. Þá fékk ég að vita að þar sem ég hafði komið svona snemma hefði ég verið settur í herbergi sem væri ætlað “under-grad” (þ.e. þeim sem væru að taka fyrstu gráðuna sína) og því væri meira um partístand í þessum stigagangi. Á nýja staðnum væru eingöngu “grad” og það væru færri í hverri íbúð (6 í stað 8).

Þannig að ég fékk lyklana að þriðja herberginu mínu. Það er á fjórðu hæð (en engin lyfta, sem þó var á hinum staðnum), herbergið er töluvert minna, og glugginn er miklu minni sem þýðir minni birtu inn. Útsýnið er mikið skert, þar sem þetta er 3 hæðum neðar. Eldhúsið töluvert smærra í sniðum, enda færri í íbúðinni. Já, og auðvitað var enginn sturtuhaus – nokkuð sem kætti mig sérstaklega þegar ég tilkynnti manninum það í afgreiðslunni, aftur.

Ég var nú frekar skúffaður með þessi býtti en sætti mig í sjálfu sér við þetta, þar til ég heyrði í sambýlingum mínum sem voru jafn óánægðir og ég. Við ákváðum að láta reyna á hvort við þyrftum nokkuð að flytja, og sýnist mér helst að við höfum haft betur í þeirri baráttu okkar, amk þar til annað kemur í ljós. Okkur hefur ekki verið hent út – ennþá.

Ég fæ því enn um stund að njóta útsýnisins héðan af 7. hæð. T.d í þau örfáu skipti að hér er léttskýjað þá sést vel mergð flugvéla á lofti eftir að skyggja tekur. Vissulega dálítið gaman að fylgjast með 20 – 30 blikkandi ljósum ferðast um himinhvolfið á mismikilli ferð. Þegar þessa sjónarspils nýtur ekki við, drep ég tímann við lestur bóka, horfi á dvd myndir, eða horfi á BBC á netinu. Þeir eru með svipað kerfi og rúv, hægt að horfa og hlusta á flesta innlenda þætti bæði í útvarpi og sjónvarpi í eina viku frá útsendingu.

Ég tók nokkrar myndir af íbúðinni skömmu eftir komu og setti þær á netið fyrir áhugasama:
http://picasaweb.google.co.uk/benedikt.bogason/FrancesGardnerHouse

Skildu eftir svar